Eftirfarandi upplýsingar eru gefnar með venjulegum fyrirvara. Við samningu prófsins geta orðið breytingar frá neðangreindri lýsingu. Lýsingunni er þó ætlað að gefa sem réttasta mynd af prófinu og styðja þannig við þig í prófundirbúningnum.
Samkvæmt upplýsingum frá prófstjóra hefst prófið stundvíslega kl. 900 og lýkur stundvíslega kl. 1200 mánudaginn 7. desember næstkomandi. Próftími er 3 klukkustundir. Staðfestu sjálf þessar upplýsingar með því að fara inn á vef Háskóla Íslands.
Upplýsingar um prófstað verða birtar á vefnum nokkrum dögum fyrir prófið. Gættu þess að leita nýjustu upplýsinga 1–2 dögum fyrir próf.
Prófið er tvískipt. Annars vegar eru fyrirhugaðar 5 efnisspurningar og hins vegar 12 fjölvalsspurningar. Efnisspurningar gilda samtals 60% af prófinu en fjölvalsspurningarnar 40%.
Efnisinntak efnisspurninga er svipað og á heimaprófinu. Einnig er reynt að hafa þyngd efnisspurninga áþekka og þar. Gættu samt að því að það er sjálfkrafa erfiðara að svara efnisspurningum á prófi þar sem ekki er aðgangur að glærum, kennslubókum eða öðru sambærilegu efni.
Við miðum við að krossaprófin á netinu gefi góða mynd af fjölvalsspurningum á prófinu.
Efnisspurningar geta tekið yfir mjög misjafnt efni. Þær geta verið beint úr bókinni, fyrirlestrum, umræðum í tíma, spurðu og svöruðu eða umræðuþráðum í Uglu. Þær geta kallað eftir staðreyndaþekkingu, skilningi, beitingu eða einföldum útreikningum. Í síðasttalda tilfellinu verða útreikningar þó það einfaldir að hægt er að setja gefnar upplýsingar beint inn í viðeigandi formúlur. Ég hvet þig til að skoða vel formúlu- og töfluhefti námskeiðsins til að sjá hvaða upplýsingar muni fylgja prófinu.
Efnisspurning getur verið stuttsvarsspurning, þ.e. spurning um afmarkað efni sem er hægt að svara í fáeinum setningum. Efnisspurning getur einnig falist í því að lýsa mynd eða töflu.
Greinargóða lýsingu á námsefni má finna í námskeiðslýsingu námskeiðsins.
Lesefni fyrir þáttagreiningu.Lestu eftirfarandi í Kline.
Þú þarft að hafa með þér reiknivél og hafa öðlast nauðsynlega kunnáttu og þjálfun í notkun hennar. Reiknivélin þarf að geta reiknað kvaðratrót og sett tölur í annað veldi.
Önnur hjálpartæki eru óheimil. Sérstaklega skal tekið fram að óheimilt er að hafa kennslubækur, minnismiða, tímaglósur eða önnur slík gögn.
Með prófinu færðu mjög einfalt formúlu- og töfluhefti. Gert er ráð fyrir að þú hafir ýmsar einfaldar formúlur á valdi þínu aðrar en þær fáu sem eru í heftinu.
Lokaprófið vegur 80% af lokaeinkunn námskeiðsins. Heimaprófið vegur 20%. Auk þess getur komið til breytingar á einkunn ef þjálfunarkröfum námskeiðsins hafi ekki verið mætt. Nákvæmar upplýsingar um það er að finna í námskeiðslýsingu námskeiðsins. Skoðaðu vel upplýsingar um námsmat.
Gangi þér vel!
© 2004–2009 Guðmundur B. Arnkelsson (Síðast breytt 3. desember 2009)