Kassarit Kassarit sýna vel lögun dreifingar.
Lögun dreifingar

Kassaritið lengst til vinstri sýnir jákvætt skekkta dreifingu. Efra skeggið er mun lengra en það neðra og línan sem sýnir miðju dreifingarinnar er neðarlega í kassanum. Kassaritið í miðjunni sýnir óskekkta dreifingu. Línan er nálægt miðju kassans og skeggin eru bæði jafnlöng. Kassaritið lengst til hægri sýnir neikvætt skekkta dreifingu. Neðra skeggið er mun lengra en það efra og línan er ofarlega í kassanum.