Kassarit Kassarit geta sýnt staðsetningu dreifingar
Staðsetning dreifingar

Kassaritið til vinstri er úr úrtaki úr þýði sem hefur miðju við 155. Það má sjá það á því að strikið þvert yfir kassann sem sýnir miðju dreifingarinnar er til móts við töluna 155. Kassaritið til hægri er úr úrtaki úr þýði sem hefur miðju við 175 eins og sjá má á því að strikið þvert yfir kassann sem sýnir miðju dreifingarinnar er til móts við töluna 175.