Guðrún Oddsdóttir
Einhverfa og leikskóli


Lög og reglugerðir

Lög um leikskóla nr.78/1994.

Í öðrum kafla um markmið segir m.a:

að kappkosta í samvinnu við heimilin að efla alhliða þroska barna í samræmi við eðli og þarfir hvers og eins og leitast við að hlúa að þeim andlega og líkamlega svo að þau fái notið bernsku sinnar,

Í sjötta kafla um rétt leikskólabarna til sérstakrar aðstoðar og þjálfunar og ráðgjafarþjónustu segir:

15. gr. Börn á leikskólaaldri, sem vegna fötlunar, tilfinningalegra eða félagslegra erfiðleika þurfa sérstaka aðstoð og þjálfun, eiga rétt á henni innan leikskólans undir handleiðslu sérfræðinga.
16.gr. Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta fyrir leikskóla skal veita foreldrum barna og starfsfólki leikskóla nauðsynlega ráðgjöf og þjónustu sem nánar verður kveðið á um í reglugerð um starfssvið þjónustunnar.
17.gr. Leikskólar skulu þannig byggðir og reknir að þeir geti sinnt fötluðum börnum.

Engar reglugerðir eru til um sérkennslu leikskólabarna en í Reglugerð um sérkennslu nr.389/1996 fyrir grunnskóla segir m.a:

2. gr. Grunnskólinn skal laga starf sitt að þroska og getu allra nemenda sinna, þannig að hver nemandi fái kennslu við hæfi. Því ber að skipuleggja skólastarfið í heild út frá þörfum allra nemenda og skapa námsumhverfi sem hæfir hverjum og einum.

Lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992.

Fyrsti kafli fjallar um markmið og skilgreiningu laganna, þar segir m.a:

1. gr. Markmið þessara laga er að tryggja fötluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfélagsþegna og skapa þeim skilyrði til þess að lifa eðlilegu lífi....
2. gr. Sá á rétt á þjónustu samkvæmt lögum þessum sem er andlega eða líkamlega fatlaður og þarfnast sérstakrar þjónustu og stuðnings af þeim sökum. Hér er átt við þroskahömlun, geðfötlun, hreyfihömlun, sjón- og heyrnarskerðingu...

Í þriðja kafla um almenna þjónustu segir:

7. gr. Fatlaðir skulu eiga rétt á allri almennri þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Ávallt skal leitast við að veita fötluðum þjónustu samkvæmt almennum lögum á sviði menntunar og heilbrigðis og félagsþjónustu. Reynist þjónustuþörf hins fatlaða meiri en svo að henni verði fullnægt innan almennrar þjónustu skal hinn fatlaði fá þjónustu samkvæmt lögum þessum.

Áttundi kafli fjallar um Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins, en hlutverk hennar er m.a:

-Gerð, prófun og mat viðeigandi meðferðar- og þjálfunaráætlana. Ráðgjöf og leiðbeiningar fyrir foreldra/forráðamenn eða aðra meðferðaraðila.
-Tilvísanir til annarra meðferðaraðila og stofnana í því skyni að hlutaðeigandi skjólstæðingur njóti þar þeirrar þjónustu og þjálfunar sem þörf er hverju sinni. Greiningar- og ráðgjafarstöðinni ber skylda til að láta meðferðaraðilum í té leiðbeiningar og ráðgjöf þegar þess er óskað.

Níundi kafli er um málefni barna og fjölskyldna fatlaðra:

19. gr. Fötluð börn skulu eiga rétt til leikskóladvalar á vegum sveitarfélaga og skal veita hana á almennum leikskólum með nauðsynlegri stuðningsþjónustu eða á sérhæfðum deildum, sbr. lög um leikskóla, nr. 48/1991.

©1996