Eftirfarandi er hluti heimaprófsins, þ.e. allt nema verkefnin sjálf. Þetta er ætlað til að gefa þér glögga mynd af uppbyggingu prófsins og upplýsingar um fyrirkomulag að öðru leyti.
Heimaprófið er felur í sér 4–6 efnisspurningar sem þú þarft að svara öllum. Heimaprófið vegur samtals 20% af lokaeinkunn námskeiðsins, samanber námskeiðslýsingu.
Skiladagur heimaprófsins er fyrir kl. 16:00 mánudaginn 26. október nk. Skila skal verkefninu til þjónustuborðsins í Gimli. Gættu að því að það eru tvö þjónustuborð, þetta þjónustuborð er í Gimli nálægt skrifstofu sálfræðideildar. Þú finnur bréfalúgu í hnéhæð vinstra megin við glervegginn og undir upplýsingaskjáum.
Heimaprófið birtist í heimaprófsmöppunni í Uglu um miðjan dag fimmtudaginn 22. október nk.
Á forsíðu heimaprófsins þarf að koma fram nafn, kennitala og titillinn: Heimapróf í Tölfræði III. Á forsíðuna þarf að rita eftirfarandi texta, setja dagsetningu og undirritun.
Eftirfarandi heimapróf er unnið af mér einum og án aðstoðar frá samnemendum eða öðrum. Því til staðfestingar er undirskrift mín.
Útbúið verður sérstakt svarhefti sem uppfyllir ofangreindar formkröfur. Við ætlumst til að þú notir þetta svarhefti og ritir svör þín í það, því það stuðlar að því að úrlausn þín fari í réttan feril hjá þjónustuborði og í yfirferð.
Gerð er sú krafa að allt efni úrlausnarinnar sé þitt eigið. Í því felst að þú mátt ekki taka efni frá öðrum og gera það að hluta þinnar úrlausnar.
|
Dæmi um ritstuld Við getum sundurliðað meðaltöl niður í meginhrif og samvirknihrif. Sama gildir um dreifinguna. [Glæran Sundurliðun dreifingar í Tvíhliða dreifigreining.] |
|
Eðlileg umorðun Það er hægt að breyta meðaltölunum í megin- og samvirknihrif. Þetta eru tölur sem við getum lagt saman og fengið þannig meðaltölin út eins og sýnt var í töflu í einum fyrirlestrinum. Í staðinn fyrir að segja t.d. að strákar séu að meðaltali 180 cm en stelpur 170 cm, getum við sagt að hrif stráka séu +5 cm og hrif stúlkna −5 miðað við heildarmeðaltalið 175 cm. Þetta væru þá meginhrif fyrir kynferði. Meginhrif kyns í dreifigreiningartöflunni gefur þá upp breytileikann sem felst í því að hrifin eru ólík á þennan hátt eftir kyni. |
Eftirfarandi viðmið verða notuð við skilgreiningu á ritstuldi:
Eftirfarandi felur ekki í sér ritstuld heldur þvert á móti skynsamlegar vinnuaðferðir með hliðsjón af því að þetta er heimapróf en ekki skilaverkefni eða ritgerð:
Ef nemandi gerir sig sekan um ritstuld, verður gripið til annars hvors af tveimur úrræðum eftir umfangi ritstuldarins. Tilfallandi ritstuldur við úrlausn einnar eða tveggja spurninga verður til þess að litið er fram hjá þeim texta og ekki tekið tillit til hans jafnvel þótt svarað sé rétt. Verulegur ritstuldur, þ.e. ef hann er annað hvort meira en tilfallandi eða nær til fleiri en tveggja spurninga, verður til þess að heimaprófið ónýtist að fullu og einkunnin 0,0 færð fyrir þann hluta námskeiðsins.
Engin sérstakur stuðningur er fyrirhugaður vegna heimaprófsins. Það verður þó stuttur stoðtími á föstudaginn 23. október nk. þar sem gefst færi á að fá svör við spurningum sem tengjast námsefninu almennt en ekki efni heimaprófsins sérstaklega.
Það hefur einnig verið stofnaður umræðuþráður í Uglu þar sem hægt er að varpa fram fyrirspurnum og fá svör við þeim. Einnig er bent á að fylgjast vel með heimasvæði námskeiðsins og tilkynningum sem kunna að vera settar inn í Uglu.
Eins og gefur að skilja værið það prófsvindl ef nemandi svarar öðrum nemanda á umræðuþræðinum. Þú þarft einnig að gæta þess að þú gefir ekki vísbendingar um svör með fyrirspurnum þínum. Aðgættu einnig að ekki er hægt að svara efnislegum spurningum um úrlausnir tiltekinna verkefna fremur en í öðrum prófum.
Svaraðu eftirfarandi spurningum ítarlega. Gættu þess að svör þín séu skipulega fram sett.
[… texti felldur brott … ]
© 2004–2009 Guðmundur B. Arnkelsson (síðast breytt 19. október 2009)