Gættu þess að byggja verkefnið á þessari lýsingu og réttri gagnaskrá. Verkefni breytast milli ára. Við getum ekki tekið gild verkefni byggð á gömlum verkefnislýsingum eða gögnum fyrri ára.
Hversu mikið þarf að drekka svo áfengismagn í blóði fari yfir leyfileg mörk?
Verkefnið byggir á verkefni á heimasíðu kennslubókarinnar. Verkefnið er að finna undir EESEE undir titlinum Blood Alcohol Content. Farðu inn á EESEE annað hvort með því að setja upp geisladiskinn sem fylgir bókinni eða smella á viðeigandi tengiorð á heimasíðu bókarinnar. Þar smellirðu annað hvort á flipann Textbook eða Story Title og fikrar þig þaðan áfram. Það getur verið gagnlegt að kynna sér vel lýsinguna þar svo þú hafir góða yfirsýn yfir gögnin og fyrir hvað þau standa.
Nemar við ónefndan háskóla í Ástralíu rannsökuðu tengsl áfengismagns í blóði við aldur, kynferði og þyngd. Tuttugu og tveimur starfsmönnum og nemendum skólans var boðið í hanastél í hádeginu. Áður en fólk mætti í gleðskapinn mældi lögreglan áfengismagn í blóði með öndunarmæli. Í boðinu var veitt hvítvín sem innihélt 10% áfengsmagn, borið fram í 120 ml glösum. Gestirnir réðu hversu mikið hvítvín þeir drukku. Í boðinu var einnig boðið upp á snarl og vatn. Eftir 45 mínútur voru gestirnir beðnir um að hætta drykkju og fimmtán mínútum síðar var áfengismagn í blóði aftur mælt með öndunarmæli. Gestirnir voru síðan beðnir um að gefa upp hversu mörg glös þeir hefðu drukkið.
Skiladagur verkefnisins er sunnudagurinn 26. apríl. Skila skal verkefninu í pósthólf við þjónustuborðið í Gimli.
Til að koma á móts við nemendur sem búa á Vallarheiði og aðra þá sem eiga erfitt með að skila á sunnudegi, er skilgreindur sérstakur eindagi fyrir skilaverkefnið. Ef verkefni berst til þjónustuborðs eigi síðar en kl. 1300 á mánudegi, verður litið svo á að því hafi verið skilað innan tímamarka.
Nemendur geta varpað fram spurningum tengdum verkefninu og svarað öðrum nemendum á umræðuþræði á heimasvæði námskeiðsins í Uglu eða í stoðtíma föstudaginn 26. apríl nk.
Á umræðuþráðinn má setja spurningar og svör sem tengjast úrlausn á skilaverkefni 4. Inga Dröfn, stoðkennari, mun fylgjast með umræðum og koma inn í þær ef þurfa þykir.
Við áskiljum okkur ritstjórnarvald sem felst m.a. í því að fjarlægja innlegg sem við teljum óviðeigandi eða sem tengjast ekki beint úrlausn verkefnisins að okkar mati. Vinsamlega sýndu þessu menntaða einveldi fullan skilning.
Gerðu vandaða og nákvæma skýrslu sem tekur á öllum eftirfarandi spurningum og viðfangsefnum. Byrjaðu á því að sækja SPSS gagnaskrána og vista hana á harða diskinn hjá þér. Þú getur einnig nálgast textaskrá sem hægt er að lesa inn í CrunchIt. SPSS er þó sennilega heppilegra en CrunchIt fyrir þá útreikninga sem þarf í verkefnið.
Mest mega tveir nemendur vera um hvert skilaverkefni. Athugaðu: Þú mátt aðeins vinna skilaverkefni tvisvar með sama nemanda.
Verkefnið þarf að vera á APA-formi, þ.e. með Inngangi, Aðferð, Niðurstöðum og Umræðu. Ef vísað er til heimilda, ber að fylgja heimildakerfi APA.
© 2004–2009 Guðmundur B. Arnkelsson (síðast breytt 8. apríl 2009)