Tölfræði IISkilaverkefni 3: Krosstöflur

Verkefnið byggir á gagnasafninu University of Florida graduate salaries sem fylgir SPSS forritinu.

Framkvæmd var rannsókn til að athuga samband launatekna, námsgreinar og kyns. Þátttakendur voru 1.100 útskriftarnemar frá háskólanum University of Florida en af þeim voru 632 karlar og 469 konur. Úrtakið byggði á nemendaskrá háskólans en haft var samband við útskriftarnemana til að athuga byrjunartekjur þeirra. Um var að ræða útskriftarnema frá hausti 1989 til vors 1991.

Rannsóknarspurningarnar eru annars vegar hvort tengsl séu á milli námsgreinar og launatekna (en um er ræða árstekjur) og hins vegar hvort tengsl séu á milli kyns og námsgreinar. Í fyrstu rannsóknarspurningunni er námsgrein frumbreyta og launatekjur fylgibreyta en í seinni rannsóknarspurningunni er kyn frumbreyta og námsgrein fylgibreyta.

Skil og tímamörk

Skiladagur verkefnisins er mánudaginn 6. apríl nk. kl. 13:00 eftir hádegi. Skila skal verkefninu í pósthólf við þjónustuborðið í Gimli.

Stuðningur

Nemendur geta varpað fram spurningum tengdum verkefninu og svarað öðrum nemendum á umræðuþræði á heimasvæði námskeiðsins í Uglu eða í stoðtíma föstudaginn 3. apríl nk.

Á umræðuþráðinn má setja spurningar og svör sem tengjast úrlausn á skilaverkefni 3. Steinunn Anna, stoðkennari, mun fylgjast með umræðum og koma inn í þær ef þurfa þykir.

Við áskiljum okkur ritstjórnarvald sem felst m.a. í því að fjarlægja innlegg sem við teljum óviðeigandi eða sem tengjast ekki beint úrlausn verkefnisins að okkar mati. Vinsamlega sýndu þessu menntaða einveldi fullan skilning.

Verkefnið

Gerðu vandaða og nákvæma skýrslu sem tekur á öllum eftirfarandi spurningum og úrlausnarefnum. Byrjaðu á því að sækja SPSS gagnaskrá eða CrunchIt gagnaskrá og vista hana á harða diskinn hjá þér. Í CrunchIt ferðu í DATA/Load Data/From File til að sækja skrána á harða diskinn hjá þér. Þú getur einnig farið DATA/Load Data/From WWW og gefið upp slóðina http://www.gba.is/tol2/verkefni/skv3_09.txt .

Mest mega tveir nemendur vera um hvert skilaverkefni. Athugaðu: Þú mátt aðeins vinna skilaverkefni tvisvar með sama nemanda.

Verkefnið þarf að vera á APA-formi, þ.e. með Inngangi, Aðferð, Niðurstöðum og Umræðu. Ef vísað er til heimilda, ber að fylgja heimildakerfi APA.

Spurningar

  1. Hvernig myndir þú halda að sambandið væri í fyrstu án stuðnings við gögn?
  2. Lýstu gögnum myndrænt og í orðum. Er allt eins og það á að vera eða kemur eitthvað á óvart?
  3. Framkvæmdu viðeigandi marktektarpróf fyrir rannsóknarspurningarnar tvær. Miðaðu við α= 0,05.
  4. Athugaðu vel allar forsendur marktektarprófanna sem þú notar og gefðu skýrt til kynna hvort þær séu eða séu ekki fyrir hendi í hvoru tilviki fyrir sig.
  5. Túlkaðu niðurstöður beggja prófanna
  6. Hvaða þýði má draga ályktanir um út frá þessari rannsókn? Passaðu að athuga tilganginn með rannsókninni og hvers konar útskriftarnemar þetta voru.
  7. Hverjar eru takmarkanir rannsóknarinnar og hvernig hefði mátt komast hjá þeim?
  8. Eru einhverjar upplýsingar sem þú hefðir viljað hafa til að meta gæði rannsóknarinnar?