Eftirfarandi er lýsing á inntaki og fyrirkomulagi heimaprófs í Tölfræði II á vorönn 2009. Þetta er hluti heimaprófsins, þ.e. allt nema verkefnin sjálf og er ætlað að gefa þér glögga mynd af uppbyggingu prófsins og upplýsingar um fyrirkomulag að öðru leyti.
Heimaprófið felur í sér 5–7 efnisspurningar sem þú þarft að svara öllum. Heimaprófið vegur samtals 20% af lokaeinkunn námskeiðsins, samanber námskeiðslýsingu.
Skiladagur heimaprófsins er mánudagurinn 9. mars kl. 13:00. Skila skal verkefninu í pósthólf við þjónustuborðið í Gimli.
Heimaprófið birtist á heimaprófssvæðinu í Uglu um hádegi fimmtudaginn 5. mars.
Á forsíðu heimaprófsins þarf að koma fram nafn, kennitala og titillinn: Heimapróf í Tölfræði II. Á forsíðuna þarf að rita eftirfarandi texta, setja dagsetningu og undirritun með eigin hendi.
Eftirfarandi heimapróf er unnið af mér einum og án aðstoðar frá samnemendum eða öðrum. Því til staðfestingar er undirskrift mín.
Útbúið verður sérstakt svarhefti sem uppfyllir ofangreindar formkröfur. Við ætlumst til að þú notir þetta svarhefti og ritir svör þín í það, það stuðlar að því að úrlausn þín fari í réttan feril hjá þjónustuborði og í yfirferð.
Gerð er sú krafa að allt efni úrlausnarinnar sé þitt eigið. Í því felst að þú mátt ekki taka efni frá öðrum og gera það að hluta þinnar úrlausnar.
|
Dæmi um ritstuld Yfirgrip leiðréttra öryggisbila er nær 95% heldur en við normalnálgun. Yfirgrip sveiflast mun minna eftir úrtaksstærð. [Glæran Yfirgrip leiðréttra öryggisbila í Ályktanir um hlutföll.] |
|
Eðlileg umorðun Helsti kosturinn við leiðréttu öryggisbilin er að yfirgripið er nær 95%—að vísu eilítið meira—heldur en þegar normalnálgun er notuð. Yfirgripið er einnig stöðugra, þ.e. helst á tiltölulega þröngu bili óháð t.d. úrtaksstærð. Yfirgripið er mun breytilegra fyrir normalnálgun ef marka má myndina á einni glærunni sem sýnd var í kennslustund. |
Eftirfarandi viðmið verða notuð við skilgreiningu á ritstuldi:
Eftirfarandi felur ekki í sér ritstuld heldur þvert á móti skynsamlegar vinnuaðferðir með hliðsjón af því að þetta er heimapróf en ekki skilaverkefni eða ritgerð:
Ef nemandi gerir sig sekan um ritstuld, verður gripið til annars hvors af tveimur úrræðum eftir umfangi ritstuldarins. Tilfallandi ritstuldur við úrlausn einnar eða tveggja spurninga verður til þess að litið er fram hjá þeim texta og ekki tekið tillit til hans jafnvel þótt svarað sé rétt. Verulegur ritstuldur, þ.e. ef hann er annað hvort meira en tilfallandi eða nær til fleiri en tveggja spurninga, verður til þess að heimaprófið ónýtist og einkunnin 0,0 færð fyrir þann hluta námskeiðsins.
Engin sérstakur stuðningur er fyrirhugaður vegna heimaprófsins. Það verður þó stuttur stoðtími á föstudaginn 6. mars þar sem gefst færi á að fá svör við spurningum sem tengjast fyrirkomulagi og úrlausnarefnum almennt en ekki úrlausn heimaprófsins sérstaklega.
Það hefur einnig verið stofnaður umræðuþráður í Uglu þar sem hægt er að varpa fram fyrirspurnum og fá svör við þeim. Einnig er bent á að fylgjast vel með heimasvæði námskeiðsins og tilkynningum sem kunna að vera settar inn í Uglu.
Eins og gefur að skilja værið það prófsvindl ef nemandi svarar öðrum nemanda á umræðuþræðinum. Þú þarft einnig að gæta þess að ekki er hægt að svara efnislegum spurningum um úrlausnir tiltekinna verkefna fremur en í öðrum prófum.
Svaraðu eftirfarandi spurningum ítarlega—mundu þó að lengd kemur ekki í stað gæða. Gættu þess að svör þín séu skipulega fram sett.
[… texti felldur brott … ]
Í endanlegri gerð heimaprófsins koma hér stuttar efnisspurningar.
© 2005—2009 Guðmundur B. Arnkelsson (síðast breytt 3. mars 2009)