Normalrit Normaldreifð gögn

Hér má sjá normalrit af normaldreifðum gögnum. Þetta myndrit má túlka á þann veg að sterk línuleg tengsl séu milli breytunnar og væntigilda normaldreifingar fyrir breytuna. Augljóst er að hér víkja raungildi einungis örlítið frá línunni sem gefur til kynna væntigildi normaldreifingar og engin augljós útgildi er að sjá í dreifingunni. Normaldreifing er því sú tegund dreifingar sem lýsir þessum gögnum best.

normalrit af normaldreifðri breytu.